Líf í árvekni: Skotta horfir á Stubbana

mánudagur, 3. apríl 2006

Skotta horfir á Stubbana

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Maður er greinilega hugfangin! Skemmtileg mynd.
Hvernig gengur með vatnið!
Mamma

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Hér eru tveir Verulega Hávaðasamir Blásarar í gangi í eldhúsi og Matta herbergi, gólfdúknum hefur verið rúllað upp af eldhúsgólfinu og loftið þar "angar" af rakri loftmylsnu og guðmávitahverjufleiru. Ljóta ástandið og ekki horfur á að neitt breytist fyrr en eftir rúma viku þegar tjónamatsmaður kemur næst að mæla rakann í lofti og veggjum. Guð gefi oss æðruleysi...

p.s. Mýslurnar hafa ekki drukknað, þær átu poppkorn af eldhúsgólfinu á sunnudagskvöldið (!)

Nafnlaus sagði...

við eigum einhverjar spólur með þessum herfilegu stubbum... viltu?

Nafnlaus sagði...

Ótrúlega falleg frænka að horfa á ótrúlega óþolandi sjónvarpsefni, úff það fer að koma að þessu skeiði á mínu heimili, hann sonur minn elskar teiknó :)

Knús á línuna frá okkur hérna á klakanum sem er ekki svo kaldur þessa dagana...

Auður og kó

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Gunni: Tja, það væri vissulega tilbreyting að heyra í Stubbunum segja "O-ó!" á norsku og sjá eitthvað annað til þeirra en þennan eina jólasnjóþátt sem Skottan horfir endalaust á! Ertu viss um að nafni minn vilji sleppa takinu á þeim, eða á að laumast á bak við barnið...?

Auður: Reyndu að forðast sérstaklega spólur með "grípandi" tónlist því hún á það til að festast í hausnum á manni og dynja þar öllum stundum! "Teletubbies, teletubbies say hello!" Arg...!

Nafnlaus sagði...

Já það er ljúft að Óðinn er kominn yfir Stubbana en verra að hann er oft í PlayStation leik sem kallast Sonic sem fylgir óþolandi tónlist og allskyns "ping" hljóð. En hér er ég sumsé að kommenta á síðuna þína. Takk fyrir kaffið og spjallið í kvöld...þú verður að labba við einhverntíma hjá mér hinum megin við golfvöllinn og fá kaffi.

Kolbrún of Warrender Park Road

Katrín sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
osm18 sagði...

sakso çeken güzel kızlar olgun porno saxo izle için bakman lazım burada türk pornosu, türkçe porno, türkçe sikiş, anal porno, tecavüz sikiş