Minn heittelskaði, Sálfræðingurinn (útskrift 12. júní), er voðalega mikið fyrir að tala um ,,eftiráskýringar" þegar ég fer að grufla í kollinum á mér og leita að ástæðum fyrir því að dökki tónninn er farinn að gera sig breiðan. ,,Konur hugsa of mikið," segir hann spekingslega eins og sá sem vitið hefur og fjórar háskólagráður í vasanum og eitt meistarabréf. Og vill meina að að þegar kemistríið í hausnum hefur dempað gleðina, jafnvel bara lítið, komi hugurinn til og skrúfi alveg fyrir það sem eftir er af henni með því að róta upp öllu því dapurlega og sorglega og ergilega sem þar má finna í leyndum fylgsnum til að réttlæta depurðina.Ég býst við því að hann hafi rétt fyrir sér. Kúnstin líklega sú mikilvægust að yppa öxlum yfir mýflugum eins og Únglíngum sem vilja alls ekki læra dönsku þótt skólakerfið krefjist þess, fréttum af drekum sem taka sig upp hist og her, fólki sem einu sinni var nálægt en er nú fjær og standast þá freistingu að snúa þeim í huganum upp í úlfaldalestir. Hvað svo sem þær suða...


5 álit:
Ég er sammála honum! Knúskveðja, Kiddi
Jæja á nú ekki að fara blogga smá, ég er alltaf að kíkja;)
Kveðja Auður Lísa
Mikið sakna ég bloggsins þíns.
I.
Bwaahahahha! Awesome. xoxbridal jackets. Christian Louboutin Heels
I like the valuable info you provide in your articles. I will bookmark your blog and check again here frequently. I'm quite sure I will learn a lot of new stuff right here! Good luck for the next!
tag heuer formula replica
Sendu inn athugasemd