Líf í árvekni: Úr Vesturhafi

þriðjudagur, 20. maí 2008

Úr Vesturhafi

Makalaust er það merkilegt að alltaf skuli heyrast í hafinu innan í kuðungnum, svona löngu eftir að hann komst á þurrt land. Þessum skolaði á land úr Vesturhafi upp á strönd eyjarinnar Tiree (Tyrvist heitir hún í Orkneyingasögu) út af vesturströnd Skotlands í júní í fyrrasumar en býr nú í gluggakistunni á baðherbergi í Þingholtunum...

Skottan á fjögurra ára afmæli á morgun, 21. maí. Fjögur ár síðan þá.
Tíminn er skrítið fyrirbæri...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hjartanlegar hamingjuóskir með afmælisdaginn elsku Sigrún Ugla!
'Astarkveðjur,Amma og Afi

Nafnlaus sagði...

Hjartanlega til hamingju með stelpuskottið!
Ótrúlegt að það séu 4 ár síðan ég eignaðist þessa yndislegu frænku mína. Knúskveðja
Auður Lilja guðmóðir og kó.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju med ammlid elsku systir!


...afram Island!!!

-katrin i krakow

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Ef einhver skyldi vera orðinn langeygður eftir nýjum skrifum á þessari síðu þá upplýsist hér með að tölvan yðar einlægrar krassaði um daginn - harði diskurinn ónýtur - og er komin í aðgerð á viðeigandi stofnun - tölvan þ.e. ekki yðar einlæg, sem er við bestu heilsu. Skjáumst þegar úr rætist,
Kveðja,
Villa

Nafnlaus sagði...

Hi Villa,

Did you get to Edinburgh? How was your trip.

So sorry we missed you.

Arnot