Líf í árvekni: Flogin úr hreiðrinu...

miðvikudagur, 4. júlí 2007

Flogin úr hreiðrinu...

Hef fyrir búferlaflutningaannríki ekki haft tíma til að leggja hér inn færslu um stúdentsútskrift heimasætunnar 28. júní sl. frá James Gillespies High School, né heldur átta mig á þeim veruleika að ekki aðeins flaug hún til Íslands í gærmorgun heldur sömuleiðis úr hreiðrinu sem yðar einlæg hefur búið henni næstliðin 20 ár. Hún er sem sagt ekki lengur heimasæta..! (Að vísu hefur hún aðeins leiguhúsnæði til áramóta og kemur kannski heim til okkar aftur þá - en kona veit aldrei fyrir víst hvað framtíðin ber í skauti sér sosum).

Ég veit ekki alveg hvernig mér líður með það að eiga uppkomna dóttur sem er flutt að heiman og er að byrja háskólanám í ensku í haust. Þetta er svona ,,gvont" tilfinning - ég er bæði dáldið glöð og dáldið meyr.

Hér til hægri er hún um það bil að fá útskriftar- kossinn frá skóla- stjóranum sínum. Hann var vitanlega á skotapilsi eins og næstum allir nema minn heittelskaði.
Aldrei hef ég séð jafnmarga saman komna í skotapilsum (tja, allavega ekki síðan ég sá 10.000 sekkjapípuleikara á skotapilsum setja heimsmet í fjölda sekkjapípuleikara að spila Amazing Grace í Holyrood Park) og aldrei, aldrei nokkurn tímann hef ég séð jafnmargar stelpur á glitrandi sparikjólum!

Hér er Alina vinkona & skiptinemi að taka við útskriftar- skjalinu sínu - hún er frá Þýskalandi og var hjá okkur í 10 daga í tilefni af útskriftinni.

Katrín segir á blogginu sínu að hún skilji hjarta sitt eftir í Skotlandi. En hún er samt glöð yfir að fara til Íslands. Vísast svona ,,gvont" tilfinning.
Ég er svo stolt af henni að ég er að springa...





6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju. :)

Nafnlaus sagði...

Glæsilegar myndir. Þið reffileg öll og heimasætan (fyrrverandi) sérlega. Til hamingju!

Katrín sagði...

awww...
má nú til með að minnast hins vegar á það að á myndinni sem er við hliðina á setningunni ,,Aldrei hef ég séð jafnmarga saman komna í skotapilsum " sést einungis í tvo skotapilsklædda drengi!

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með þessa fallegu ungu konu.

Knús og kram.

Nafnlaus sagði...

Þú mátt svo sannarlega vera stolt af þessari fallegu frænku minni :)
Til hamingju með hana :O)

Nafnlaus sagði...

Hjartanlega til hamingju með þessa duglegu og myndarlegu dóttur ! Já, flogin úr hreiðrinu,kannast við það!!!
'Astarkveðjur mamma.