Líf í árvekni: Heimsókn að ofan

föstudagur, 31. mars 2006

Heimsókn að ofan

Við höfðum ætlað okkur að vakna snemma í morgun því framundan var akstur til Glasgow eftir Mattanum, lending kl. 10.25. Vöknuðum þó á undan klukkunni, um 20 mínútur í 7, við óskaplegan dynk og stukkum fram úr með öndina í hálsinum og ótta um gassprengingu efsta í huga. Ástæða hávaðans var heimsókn að ofan; heljarinnar vatnsfoss stóð niður í gegnum loftið í gegnum gat á loftklæðingunni og mulningurinn dreifður um allt.

Táningurinn var sendur á stökki upp til gömlu frú Fersch, 92 ára nágrannakonu okkar á hæðinni fyrir ofan okkar á meðan minn heittelskaði hringdi í neyðarnúmerið 999 eftir aðstoð, og við Skottan horfðum dolfallnar á rigninguna úr eldhúsi þeirrar gömlu. Neyðarnúmerið vísaði á 'borgarvatnsveituna' en þar voru allir farnir heim nema sá sem svaraði í símann og kvaðst hann skyldu reyna að finna einhvern á bakvakt til að kanna málið. Táningurinn kom niður með þau tíðindi að frú Fersch væri lífs en hefði þurft að fá sér sæti þegar hún sá nokkurra sentimetra vatnshæðina á eldhúsgólfinu sínu, og væri búin að ýta á neyðarhnappinn sem hún hefur um hálsinn, hjálp væri á leiðinni.

Minn heittelskaði ákvað að hinkra ekki eftir neinni hjálp innlendra enda óvíst hvenær hún bærist, hentist upp til frú Fersch og hóf dauðaleit að vatnskrönum og inntaki í afar skrítnum skáp ofan við baðherbergið í íbúð þessarar fyrrverandi antík-kaupkonu og postulínssafnara (Viktoríanskar postulínsstyttur, aðallega hvítar og bláar).

Það hafðist eftir skamma stund og sjatnaði þegar flóðið sem hún ég hafði þó haft rænu á að setja fötur undir og má heita lán í óláni að fossinn var mestur ofan við vaskinn og nóg að losa stífluna í honum af og til. Í ljós kom að þvottavélarslanga hafði farið í sundur hjá frú Fersch - óvíst af hverju en ég hef mýslurnar grunaðar.

Tæpri klukkustund eftir dynkinn mikla hringdi svo símsvararinn hjá vatnsveitunni og sagði okkur að því miður finndi hann engan til að aðstoða okkur, sem skipti svo sem ekki miklu þar sem búið var að skrúfa fyrir vatnið. Húsfreyjunni þótti þó heldur slök þjónustan hjá borginni sem sífellt herjar á okkur með reglulegum hótunum um að skrúfa fyrir þetta fj. vatn ef við förum ekki að borga þeirra ótætis útsvar upp á yfir 1000 pund (sem við eigum ekkert að borga og konsúllinn okkar er margbúinn að segja þeim) !

Sem fyrr greinir stóð móttaka einkasonarins fyrir dyrum og úr varð að minn heittelskaði fór einn til Glasgow en upphófust miklar skúringar og þrif sem stóðu fram yfir hádegi. Leigumiðlunin sem opnaði hjá sér kl. 9 tók sér tvo tíma í að finna okkur hreingerningamenn, sem komu svo ekki fyrr en tveimur tímum eftir það og var þá hin vestfirska kjarnakona vitanlega búin að nánast gera vorhreingerningu í eldhúsinu svo að Heiðar snyrtipinni sjálfur hefði mátt vera stoltur af - þó ég segi sjálf frá.

'Every cloud has a silver lining' segja hérlendir um ólán sem hefur eitthvert lán í för með sér og nú stólum við á að músafjölskyldan sem hér býr inni í veggjum eldhússins hafi fengið ærlega fyrir ferðina og fljóti drukknuð um einhvers staðar langt ofan í kjallara - því það kom líka vatn inn í íbúðina fyrir neðan okkar, og hlýtur að hafa lekið um veggina því ekkert gat kom á loftið þar.

Flóðið hafði líka þá ágætu afleiðingu að hingað hringdi eigandinn frá Englandi og reyndist hinn ágætasti viðræðu, mun skemmtilegri en nafnlaust (og minnislaust) starfsfólk leigumiðlunarinnar. Húsið er að hans sögn byggt 1869, og 137 ára gamalt 'plasterið' í loftinu afar þykkt, hugsanlega er milligólfið fyllt með ösku og 'zinder' (sindri?) til hljóðeinangrunar. Vísast heljarinnar aðgerð að skipta um klæðninguna, sem ekki er hægt að fara í fyrr en allt er þornað og tryggingamatsmaður væntanlegur í þau plön eftir helgina.

Við látum okkur bara hlakka til því klárlega verður ekki hægt að nota eldhúsið í einhverja daga á meðan og þá hljótum við að fara út að borða tvisvar á dag á meðan í boði tryggingafélagsins ;o)

Eigandinn sagði mér líka annað sem mér þótti ekki síður merkilegt en hár aldur hússins, og það er að skáldsaga hefur verið skrifuð sem gerist í einmitt þessum stigagangi, bók sem ber titilinn The Stairs! Sú gæti sem best hafa verið fyrirmynd Alexander McCall Smith að gríðarskemmtilegri frásögn hans um íbúana í stigaganginum í 44 Scotland Street í Edinborg sem birt er hér í Scotsman sem framhaldssaga og hefur auk þess verið safnað í bók.

Lýk máli að sinni enda komið kósíkvöld með ALLRI fjölskyldunni eftir langa bið, á morgun koma hér myndir af Snúði og Skottu á páskaliljuvöllum í blóma!

8 ummæli:

aldis sagði...

æi, en leiðinlegt. En gangi ykkur samt vel með þetta allt saman! Bið að heilsa.

Nafnlaus sagði...

Ljótt er að heyra, en skárra en gasið!
Gaman að Matti skuli vera mættur! Lestu merkilega frétt á Þingeyrarvefnum!Gott veður en kalt :Fín mynd af Skottunni að stappa í pollinum, minnir á gamla daga! Mamma.

Nafnlaus sagði...

Úff, það eru aldeilis hremmingar en gott að heyra að ekki fór verr.
Vorhreingerningin er þá bara búin snemma þetta árið ;)
Knúskveðja
Auður Lilja framkvæmdastjórasystir!

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Mamma: Til hamingju með heita vatnið! Það er aldeilis að það lifir lengi í gömlum glæðum, kraumar enn í "Tjaldanesfelli í Arnarfirði, sem er um 15-18 milljón ára gamalt."

Auður Lilja: Útskýra nýja titilinn takk :) Hverjum á að senda hamingjuóskir? Ritstjóra Fréttabréfs Dýrfirðingafélagsins kannski?

Katrín sagði...

held að það sé "cinder" móðir, samanber Cinderella - Öskubuska.

Nafnlaus sagði...

Jæja, Skotlandsdvölin ykkar verður ekki ævintýralaus! Auðvitað leiðinlegt, en þið látið það ekki drepa ykkur niður! Og gott, að fór ekki ver. - Kikti í orðabókinni og "cinder" er ma. "úrgangur" sem myndast þegar steinkol er brennt. Nú brennur steinkol svo heitt að askan bráðnar að hluta til og hver veit, kannski eru slikir kögglar kallaðir "cinder". Örugglega ágætis einangrun.

Gunnella sagði...

Thad munar ekki um herlegheitin! Kannast vid musavesenid, gnaegd theirra her :-/ alltaf ad sja littla anga skjotast fyrir horn og svo reglulega er farid i stor frmkvaemdir her og ein og ein veidd i fotu ;-P

Nafnlaus sagði...

var að lesa um vatnið á vef unglingsins .. voða vesen en gaman að það skyldi hafa þessi aukaáhrif varðandi sögu hússins.. og en hvað það er smánarlegt að hún skuli vera svona bezzerwisser i enskunni óharnaður unglingurinn .. lol .. hvað er auður að framkvæmdastjórasig?