Líf í árvekni: Gleðilega aðventu

þriðjudagur, 2. desember 2008

Gleðilega aðventu

Árlega Smákökuboðið Okkar nálgast hröðum skrefum; þau sem telja sig náin og/eða nokkuð skyld (sko Okkur, ekki hvert öðru endilega) eru beðin vinsamlega að planleggja jólainnkaupaferð í miðbæ höfuðstaðarins laugardaginn 13. desember og geta þá stólað á heitt á könnunni og seytján sortir hér á Café Hallveigar á milli búða, húsið verður opið frá sirka tvö eftir hádegi til sirka sex síðdegis.

Tvær sortir eru þegar komnar í dósir, Rúsínukökur mömmu og Bóndakökur, líka mömmu (minnar, Björgvin er ekkert byrjaður á uppskriftum sinnar, kveðst upptekinn í verkefnavinnu til 10.des! Eins gott að komið hefur í ljós að Únglingurinn í skóginum er verklagnasti smákökubakari).

Annað kvöld eru það Súkkulaðibitakökurnar og kannski dálítið af Loftkökum, ef ég man eftir að kaupa flórsykurinn í heimleiðinni, Piparkökur Dunnu (jólasveinalaga, jólatréslaga, englalaga o.s.frv.) um helgina þegar allir (flestir) í fjölskyldunni geta rétt hjálparhönd.

Ekki alslæmt sosum að hafa Jóhannesarbúð hér við dyrnar þegar baksturstórræði standa yfir, þó þykir mér lítil prýði að bleikugrísafánaborginni sem minnir meir en lítið á yfirráðatákn (sést ekki á þessari mynd, er ögn lengra til hægri, fimm stk. grísafánar í vendi). Ég mæli með bílastæðum í næstu póstnúmerum fyrir þá sem vilja heiðra okkur með nærveru sinni; ekki var um auðugan garð að gresja í þeim efnum fyrir en nú eru mikil uppgrip hjá stöðumælavörðum sem vísast fá ágætan jólabónus, þökk sé þeim Bónusfeðgum.
Úr mínum Veruleika (sjá síðasta pistil) er það annars að frétta að í dag hrinti ég gamalli konu svo illa að hún mjaðmagrindarbrotnaði. Ekki orð meira um það.

8 ummæli:

Katrín sagði...

Mamma! Illgjörn ertu :P

Nafnlaus sagði...

Aldeilis dugleg ertu,trúi ekki þessu með gömlu, nema það hafi verið Grýla?


mamma

Nafnlaus sagði...

Þú leynir á þér vinkona góð. Það hlýtur að hafa verið rosalegur ljótikall sem hrinti konunni fyrir þig.

þva
Matta

Nafnlaus sagði...

Komdu sæl frú!
dugleg fjölskylda að klessa saman í kökur..ég gerði þetta einn laugardaginn í nóv. og bauð upp á þetta sama dag svo boxin eru tóm. Rúsinukökur mömmu hljóma vel...er það haframjöl og rúsinur?
Er í ömmuleik núna svo kannski að ég geri e-ð svona að viti loksins.
Kveðja
Inga María

Nafnlaus sagði...

Verð ég nokkuð rekin út, þó ég komi beint af Austurvelli, dúðuð en örugglega ísköld.
Súkkulaðið og smákökurnar á Hallveigarstígnum eru ekki gleymdar. Víkingarnir numu lönd en þrælarnir mæta á Austurvelli!!!
Bestu kveðjur, Bryndís

Nafnlaus sagði...

Hó hó, hefði gjarnan viljað vera í þessu boði, en það var aðeins of langt að fara. Fín mynd af skottunni.'Astarkveðjur mamma

Nafnlaus sagði...

Kem bara við á morgun.....er maður réttdræpur fyrir það?
Inga María

Nafnlaus sagði...

Ilurinn á Hallveigarstígnum var í hrópandi andstöðu við ískuldann sem ríkti yfir hópnum á Austurvelli í gær. Kaffivélin suðaði og smákökuhlaðborðið svignaði í skugga bókasafns heimilisins.
Bestu þakkir og gleðileg jól. Bryndís