Líf í árvekni: Auglýsing um mig

mánudagur, 1. október 2007

Auglýsing um mig

Þetta er auglýsing sérstaklega ætluð bókaormum í Grafarvogi en einnig bara hverjum þeim sem hafa gaman af að láta lesa fyrir sig og kunna að hafa áhuga á að hlusta á yðar einlæga mala um bækurnar sínar í þrjú korter annað kvöld.

Upplestur sem sagt og kynning á sögulegum skáldsögum Vilborgar Davíðsdóttur (með myndasýningu af söguslóðum hinna ýmsu bóka bæði Hérlendis og Grænlendis) í Foldasafni við Fjörgyn, til húsa í kjallara Grafarvogskirkju, gengið inn vestanmegin, núna á þriðjudagskvöldið 2. október kl. 20.00 - 20.45.

P.S. Ég verð ferlega sár ef engin koma en samt pínufegin því ég er eiginlega með smásviðsskrekk ;)

P.P.S. Myndin er tekin í júlíbyrjun 2005, 300 km. norðan við heimskautsbaug við strönd Ilulissat -ísfjarðarins á Norður-Grænlandi, sem er á heimsminjaskrá UNESCO.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mundi mæta ef ég væri ekki svona langt í burtu! verð með í anda!!! Bestu kveðjur ,mamma

Nafnlaus sagði...

Mér finnst fyndið að skrifa Grænlendis.

Nafnlaus sagði...

Sæl verið þið¨!!!!!!!!!!!
ég mætti til að líta inn og sjá hvað var að frétta af myndatökunni og wow hvað það er gaman að' heyra svona gott fr´ttir.Innilega til haminju með þetta og lengi lífi .Til ukku með lestinum í gærkvöldið.Kær kveðja Dee